Það skiptir ekki máli hvert þú ert að fara eða hver ferðaplönin eru, ferðalagið og upplifunin mun verða einn af skemmtilegustu og ótrúlegustu atburðunum í lífi þínu.
Ævintýri...nýjir staðir...nýtt fólk og nýir vinir...skemmtunin...lífsreynslan...afþreyingin...náttúran...kannski ertu líka að ferðast til að "kynnast" sjálfum þér betur. Hver sem ástæðan er, ferðin mun verða þér afar minnistæð, og þú munt vilja varðveita þessa minningu alltaf.
Eini ókosturinn við að fara í ferðalag er aðskilnaðurinn frá vinum og fjölskyldu. Þau munu sakna þín, þú munt sakna þeirra, og þau munu vilja heyra frá þér og fylgjast með ferðum þínum eins mikið og mögulegt er. En þótt hægt sé að vera í símasambandi eða skiptast á tölvupóstum þá er það ekki alltaf einfalt.
Það sem þú þarft þá á að halda, er eitthvað sem hjálpar þér að vera í sambandi við fólkið þitt heima, leyfa þeim að fylgjast með ferðum þínum og það sem á daga þína drífur en einnig einhvers konar ferðadagbók sem sem minnir þig á ferðina.
KILROY Blogs veitir ferðamanninum frelsi til að deila upplifunum og vera í sambandi við vini í gegnum netið á meðan ferðast er um heiminn.
Við útvegum persónulegar ferða vefsíður - svæði á netinu sem er hannað fyrir þig til að skrifa um ferðalagið. Þú þarft ekki að vera tölvunörd eða sérfræðingur á tölvur heldur eru síðurnar hentugar fyrir óreynda netverja - fólk sem undir venjulegum kringustæðum veit ekki hvar á að byrja þegar kemur að vefsíðugerð en vilja vera í sambandi við vini og ættingja á ferðalaginu.
Þú getur uppfært síðuna þína hvenær sem þér hentar á meðan þú ferðast. Fjölskylda þín og vinir geta skráð sig inn hvenær sem er og séð um leið hvar þú ert staddur í ferðalaginu og hver framvinda þín er. Þau geta einnig skilið eftir skilaboð á skilaboðasvæðinu þínu!
Við bjóðum einnig upp á prentaða dagbók, svo fyrir utan að hafa netdagbók þá geturðu prentað út og átt til minja fallega og myndræna bók sem inniheldur bloggfærslur og myndir.