Jeeps on sand

Fáðu þér þitt eigið ferðablogg

A man appearing to hold people in the palm of his hand

KILROY Blogs er þjónusta fyrir alla ferðamenn sem vilja skrásetja ferðina sína. Við bjóðum upp á bloggsíðu og svæði sem er sérstaklega notað fyrir að skrá ferðaævintýrið og deila upplifuninni með ástvinum. Síðan getur verið uppfærð frá hvaða PC tölvu sem er, svo lengi sem internet tenging er til staðar.

Aðaleiginleikinn er að það þarf enginn að vera tölvunörd eða að hafa kunnáttu í vefsíðugerð til að geta stofnað síðu. Síðan er hönnuð í þeim tilgangi að þjóna fólki á ferðalagi, svo aðgengið er þægilegt og einfalt. Hún er einstaklega hentug fyrir fólk sem veit ekki hvar það á að byrja þegar kemur að vefsíðugerð en vill notfæra sér tæknina sem er til staðar til að geta verið í stöðugu sambandi við vini og fjölskyldu á ferðalaginu.

Þú færð þitt eigið myndræna landakort, sem sýnir hvar þú ert staðsettur í heiminum. Það lýsir upp núverandi staðsetningu og þú getur auðveldlega uppfært kortið með því einfaldlega að smella á músina. Kortið er tilvalið fyrir vini og fjölskyldu sem vilja fylgjast grannt með hvar þú ert staddur á ferðalaginu.

Ferðadagbók á netinu

Woman holding a crab

Hvert sem þú ferð geturðu skrifað bloggfærslu sem allir geta séð með því að skrá sig inn á svæðið þitt! Við búum yfir stórum gagnabanka af myndum frá stöðum úr öllum heimshornum, þú getur valið af þessum myndum til að sýna staði sem þú hefur ferðast til ef þú ert ekki með myndavé eða hefur gleymt að taka myndir. En að sjálfsögðu geturðu einnig hlaðið inn eigin myndum úr ferðinni.

Þessi ferðadagbók er alger snilld því þegar þú kemur heim áttu varanlega vefsíðu til minninga um ferðina þína. Hér ertu með bloggfærslur, myndir og myndbönd sem skapa frábæra heild minninga um ævintýrin sem þú lendir í - sem vara út ævina.

Þú færð einnig gagnvirkt skilaboðasvæði sem er þitt eigið spjallsvæði þar sem fólk getur haft samband við þig og látið þig vita hversu öfundsjúkt það er út í þig!

Af hverju að bíða þar til þú kemur til baka með að sýna fjölskyldu og vinum myndirnar?! Með KILROY Blogs geturðu sett upp ótakmarkað magn myndaalbúma sem allir heima geta fengið aðgang að, og þannig séð hversu vel þú ert að skemmta þér í ferðinni þinni!

Við meira að segja breytum stærð myndanna fyrir þig og þannig auðveldum þér allt ferlið. Og það er engin takmörk á því hversu margar myndir þú getur hlaðið inn!